Bíldælingar hjartanlega tilhamingju!

Það hefur ekki farið mikið fyrir umræðu af nýbyggðri og glæsilegri Kalkþörungaverksmiðju á Bíldudal. En fæstir vita eflaust að þarna er um að ræða stærstu verksmiðju, af þessari tegund, í heiminum og hefur hún hráefni til vinnslu næstu 200 árin í það minnsta.

Samkvæmt fréttum Rúv. mun verksmiðjan á Bíldudal eingöngu selja hráefni til framleiðslu kúafóðurs. Það væri svo sannarlega fróðlegt að opna umræðuna betur um vörur sem unnar eru úr kalkþörungum og hver möguleikinn sé á frekari framleiðslu tengdri verksmiðjunni. Það er undarlegt að slík tækifæri skuli ekki hafa skotið upp kollinum fyrr, sérstaklega í ljósi umræðu um bágt ástand atvinnumála á Vestfjörðum. Miðað við þann fjölda vörutegunda sem innihalda kalkþörunga ætti frekari framleiðsla og þróun á slíkum vörum að vera leikur einn, sérstaklega í samvinnu við stærstu Kalkþörungaverksmiðju í heimi.

 Aðstæður á Bíldudal eru hinar glæsilegustu til uppbyggingar á frekari framleiðslu. Sú endurnýjun sem orðið hefur við hafnarsvæðið er til fyrirmyndar og er höfnin er orðin stærsta útflutnings höfn fjórðungsins. Flugvöllurinn er góðri aðstöðu til enn frekari flug - umferðar og með bættari samgöngum norður til Ísafjarðar má tengja bæjarfélögin sem eitt atvinnusvæði. Einnig er það heita vatn sem nú er að finna í Reykjafirði, um 10min akstri frá Bíldudal, vafalaust forskot til þróunar og vinnslu á frekari vörutegundum.

  Lausnin í atvinnumálum á Vestfjörðum liggur ætíð í þeim kostum sem landið og fólkið hefur að geyma...

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband